Current Articles

Sunday, July 11, 2010 ..:: Skoðað 48 sinnum ::..
Sumargleðin rokkar

Sælir bræður

Nú styttist allverulega í að Sumargleðin vakni af góðum draumi og geri allt vitlaust. Skipulagning er langt komin og verður prógrammið að vanda gríðarlega þétt. Segir mér sá hugur að menn sé farið að þyrsta í mjöðinn og skilst mér að ríkjandi meistari sé í þessum töluðu orðum í ströngum æfingabúðum þar sem lítrarnir fljúga. Ef mig rekur minni rétt til mun danski minkurinn mæta um miðjan föstudag og væri nú ekki úr vegi að taka góða upphitun þá síðar um kvöldið og fara á lágflug. Spurning hvort að norski olíujöfurinn verði ekki einnig mættur en yfirleitt hefur reynst erfitt að halda honum lengur en 2 sekúndur frá bjórnum eftir lendingu á klakanum. Gerið allavega ráð fyrir bingókvöldi á fös og óbærilegu stuði. Nánari upplýsingar um endanlegt prógramm mun liggja fyrir í vikunni.

Líf og fjör

bóndinn

Athugasemdir

Name (required)

Email (required)

Website

Enter the code shown above:

 
 
 
 
Eldri fréttir
Fréttasafn